11 rússnesk skip að veiðum
14.5.2021 Kl: 10:05
Að undanförnu hefur varðskipið Týr verið við eftirlitsstörf á
úthafskarfamiðunum á Reykjaneshrygg, á NEAFC-svæðinu
svonefnda.
Þegar varðskipið kom á svæðið á
dögunum voru þar 11 rússneskir togarar að veiðum. Að þessu sinni var ekki farið
um borð í skipin heldur voru þau skoðuð með eftirlitskerfum og þau mynduð.
Rússnesku skipin voru við veiðar á lögsögumörkunum þegar Týr kom á svæðið en færðu sig þá örlítið utar eftir komu varðskipsins á miðin.
Á bakaleiðinni gerði hluti áhafnarinnar sér lítið fyrir og synti
yfir línuna sem markar 200 sjómílna efnahagslögsöguna. Veðrið var með ágætum og
sundspretturinn inn í efnahagslögsöguna gekk eins og í sögu.
Frá eftirlitsstörfum áhafnarinnar á Tý.
11 rússnesk skip voru að veiðum á Reykjaneshrygg þegar varðskipið var þar við eftirlit á dögunum.
Áhöfnin á Tý stakk sér til sunds og synti inn í efnahagslögsögu Íslands.
Hálfdán Freyr Örnólfsson, stýrimaður, gerði sér lítið fyrir og synti á sundfötunum einum enda vanur sjósundsmaður.
Garðar Nellett syntir yfir línuna í flotgalla.
Stokkið frá borði.
Bláa línan markar efnahagslögsögu Íslands.
Stokkið.