Áhöfninni á varðskipinu Þór tókst að bjarga hval sem var fastur í legufæri

Áhöfnin notaðist við belg, tóg og kröku og reyndi að slæða upp spottann sem hvalurinn var flæktur í.

  • 1_1734382102118

16.12.2024 Kl: 20:45

Áhöfninni á varðskipinu Þór tókst nú síðdegis að bjarga hval sem hafði fest sig í legufæri norður af Viðey. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning um málið í gærkvöld og um miðnætti var séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar send til að kanna málið.

Vegna myrkurs og erfiðra aðstæðna gekk erfiðlega að skera af hvalnum og var ákveðið að áhöfnin á varðskipinu Þór gerði tilraun til að bjarga dýrinu í birtingu. Landhelgisgæslan gerði Matvælastofnun viðvart og voru fimm úr áhöfn Þórs sendir að hvalnum sem stoppaði stutt á yfirborðinu en var rækilega fastur í legufærinu.

Áhöfnin notaðist við belg, tóg og kröku og reyndi að slæða upp spottann sem hvalurinn var flæktur í. Á sjötta tímanum náðist loks að skera á tógið og dýrið synti í burtu frjálst ferða sinna. Hvalurinn virtist frelsinu feginn eftir raunir næturinnar og dagsins.

Hvalur fastur