Alþjóðleg æfing sprengjusérfræðinga hafin

Hin árlega æfing fyrir sprengjusérfræðinga, Northern Challenge (NC) hófst í dag. Um er að ræða alþjóðlega NATO æfingu sem Landhelgisgæslan stýrir og fer hún fram á starfssvæði Landhelgisgæslunnar á Öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli, á gamla varnarliðsvæðinu og á hafnarsvæðum þar í kring. Æfingin er í umsjón séraðgerða- og sprengjueyðingarsviðs Landhelgisgæslunnar sem einnig annast skipulagningu hennar. Fjölmargir starfsmenn Landhelgisgæslunnar koma að æfingunni auk þess sem varðskip, þyrla, sjómælingabátur og stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar taka þátt í henni.

Tilgangur Northern Challenge er að æfa viðbrögð við hryðjuverkatilfellum þar sem heimatilbúnum sprengjum hefur verið komið fyrir. Búinn er til samskonar búnaður og fundist hefur víðsvegar um heiminn síðastliðin ár og aðstæður í kring hafðar eins raunverulegar og hægt er. Einnig er rannsóknarþátturinn tekinn fyrir þar sem vettvangur er rannsakaður og farið er yfir sönnunargögn. Í æfingunni er notast við sérútbúna rannsóknarstofu sem sett er upp í þessum tilgangi. Þá er jafnframt virkjuð sérhæfð stjórnstöð meðan á æfingunni stendur þar sem öll uppsetning og verkfyrirkomulag er samkvæmt alþjóðlegum NATO ferlum.

Þetta er í fimmtánda skipti sem æfingin fer fram og stendur hún yfir í tvær vikur, frá 12. september til 22. september nk. Þetta árið taka 24 lið þátt frá 14 þjóðum og heildarfjöldi þátttakanda er um 250.

Fjöldi erlendra gesta mun heimsækja æfinguna til að kynna sér hvernig hún fer fram en æfingin er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum.