Alþjóðleg æfing sprengjusérfræðinga hafin á Íslandi

17. september, 2018

Northern Challenge haldin í sautjánda skipti

Árleg æfing sprengjusérfræðinga, Northern Challenge, er haldin á Suðurnesjum
um þessar mundir. Um er að ræða alþjóðlega NATO-æfingu sem Landhelgisgæslan
stýrir og fer hún fram á starfssvæði Landhelgisgæslunnar á öryggissvæðinu á
Keflavíkurflugvelli og hafnarsvæðum í Helguvík, Höfnum, Garði og í Hafnarfirði.
Þetta er í sautjánda sinn sem æfingin er haldin.

Tilgangur Northern Challenge er að æfa viðbrögð við hryðjuverkaárásum þar
sem heimatilbúnum sprengjum hefur verið komið fyrir. Búinn er til samskonar
búnaður og fundist hefur víðs vegar um heim og aðstæður hafðar eins
raunverulegar og kostur er. Æfingin fer fram við fjölbreyttar aðstæður, t.d. á
flugvelli, í höfnum, í skipi og við bryggju. Þá er jafnframt virkjuð sérhæfð
stjórnstöð þar sem öll uppsetning og verkfyrirkomulag er samkvæmt alþjóðlegum
ferlum Atlantshafsbandalagsins.

Æfingin veitir sprengjusérfræðingum, sem koma hvaðanæva að úr heiminum,
einstakt tækifæri til að samhæfa aðgerðir auk þess að miðla reynslu og þekkingu
sinni til annarra liða. Northern Challenge hefur notið mikilla vinsælda á
undanförnum árum og hefur skipað sér sess sem ein mikilvægasta æfing
sprengjusérfræðinga í Evrópu. Að þessu sinni eru þátttakendurnir frá 16 þjóðum
og alls eru 25 lið skráð til leiks. Æfingin stendur yfir í um tvær vikur og að
henni koma hátt í 300 manns.

Img_0019._jpgnr2db9Frá Northern Challenge 2010.