Landhelgisgæslan vekur athygli á hárri sjávarstöðu um og eftir helgi
9.1.2020 Kl: 15:07
Landhelgisgæslan vekur athygli á hárri sjávarstöðu um og
eftir helgi en stórstreymt er á sunnudaginn. Um helgina er einnig gert ráð
fyrir umhleypingasömu veðri með fremur lágum loftþrýstingi og því má gera ráð
fyrir hærri sjávarstöðu en flóðspár gefa til kynna.
Flóðspár eru reiknaðar út
frá meðalloftþrýstingi sem er 1013 hPa (millibör) en ef loftþrýstingur er lægri
en það þá hækkar sjávarborð sem nemur um 1 sentimetra fyrir hvert 1 hPa í
lækkun loftþrýstings. Þá má einnig gera ráð fyrir enn meiri hækkun sjávarborðs
vegna áhlaðanda þar sem vindur og alda standa af hafi.
Hér fyrir neðan má finna töflur sjávarfallatöflur Landhelgisgæslunnar sem sýna útreiknaða sjávarhæð í svokölluðum aðalhöfnum
frá föstudegi til mánudags.
Reykjavík:
Ísafjörður:
Djúpivogur:
Siglufjörður:
Þorlákshöfn: