Baldur farinn til mælinga

Eftirlits- og sjómælingaskipið Baldur hélt af stað í árlegt sjómælingaúthald mánudaginn 10. maí síðastliðinn.

  • Ahofn-Baldurs-og-hluti-kortagerdarfolks-sjomaelingadeildar-Large-

20.5.2021 Kl: 14:40

Eftirlits- og sjómælingaskipið Baldur hélt af stað í árlegt sjómælingaúthald mánudaginn 10. maí síðastliðinn. Þó svo að megin verkefni Baldurs séu dýptarmælingar fyrir sjókortagerð þá sinnir hann einnig öðrum verkefnum Landhelgisgæslunnar, þar með talið eftirliti, löggæslu, leit og björgun og aðstoð ýmiskonar. Má þar nefna að á leið sinni frá Reykjavík vestur á firði var Baldur kallaður til aðstoðar vélarvana smábáti í Faxaflóa og var sá dreginn til hafnar á Akranesi.

Í sumar verður áfram haldið með mælingar við norðanverða Vestfirði, en skipulegar dýptarmælingar með fjölgeislamæli í Ísafjarðardjúpi, Jökulfjörðum og við Hornstrandir hófust í fyrra.

Fyrstu daga yfirstandandi túrs var Baldur við mælingar í Hlöðuvík á Hornströndum en færði sig svo inn í Ísafjarðardjúp til mælinga í Ísafirði, innst í Djúpinu.

Mælingar í Ísafirði hófust síðastliðinn laugardag en ekki vildi betur til en svo að undir kvöld fékk Baldur tóg í skrúfurnar, en það hafði marað rétt undir yfirborði. Um var að ræða bólfæri sem engin flot voru á og því ekki sýnileg. Áhöfninni tókst að losa tógið úr skrúfunum en þar sem viðkvæmur mælingabúnaður er undir Baldri var ákveðið að fá kafara frá séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar til að kafa undir skipið og athuga hvort allt væri í lagi, sem reyndist vera.

Fjölgeislamælingar í Ísafirði gengu að öðru leyti mjög vel og lauk þeim í gærkvöldi en fjörðurinn var alveg ómældur áður. Fiskibátar í Djúpinu hafa þó stundað veiðar í firðinum en sennilega hefur ekkert skip Landhelgisgæslunnar áður farið alveg inn í fjarðarbotn. Í lok gærdags lagðist Baldur við akkeri innst í firðinum til næturdvalar en í morgun þegar akkeri var létt var fjörðurinn þakinn þunnum lagnaðarís og má því segja að Ísafjörður beri nafn með rentu.

Tryggvi-velstjori-nytur-morgunblidunnar-og-horfir-yfir-lagnadarisinn-Large-Tryggvi vélstjóri nýtur morgunblíðunnar og horfir yfir lagnaðarísinn.

Smabatur-tekinn-i-tog-a-Faxafloa-Large-Smábátur tekinn í tog.

Kafarar-seradgerdarsveitar-vid-storf-vid-Baldur-Large-Kafarar séraðgerðarsveitar kafa undir Baldur. 

Stytt-i-drattartogi-vid-Akraneshofn-Large-Stytt í dráttartógi við Akraneshöfn. 

Ahofn-Baldurs-og-hluti-kortagerdarfolks-sjomaelingadeildar-Large-

Áhöfn Baldurs og starfsmenn sjómælingadeildar rétt fyrir brottför vestur.

F.v. Hjörtur F Jónsson stýrimaður, Tryggvi Ólafsson vélstjóri, Þórður Gíslason kortagerðarmaður, Guðm. Birkir Agnarsson skipstjóri, Marteinn E. Þórdísarson bátsmaður, Andri Leifsson stýrimaður, Níels B. Finsen verkefnastjóri, Árni Þ. Vésteinsson deildarstjóri.

Vid-dyptarmaelingar-i-Isafirdi-Large-Við dýptarmælingar á Ísafirði.

Baldur-vid-akkeri-innst-i-IsafirdiBaldur við akkeri innst í Ísafirði.