Baldur mælir við Strandir í sumar

26. maí, 2023

Árlegt úthald Baldurs hafið.

26.5.2023 Kl: 10:04

Eftirlits- og
sjómælingabáturinn Baldur hefur nú hafið árlegt úthald við dýptarmælingar vegna
sjókortagerðar. Í sumar verður Baldur við mælingar við Strandir og verður
áherslan lögð á endurmælingar í sjókort númer 52 sem nær frá Horni að Gjögri.
Mælingar á þessu svæði eru megninu til frá fyrri hluta síðustu aldar og því
orðið tímabært að mæla svæðið með fjölgeislamæli og nákvæmri staðsetningatækni.

Í upphafi
úthaldsins setti höfnin á Baldri upp flóðmæla á Norðurfirði og Hólmavík og munu
gögnin úr þeim nýtast við úrvinnslu mælinganna. Einnig verða gögnin úr
flóðmælunum notuð til leiðréttinga á stuðlum til sjávarfallaútreikninga á
svæðinu og er sú vinna gerð í samstarfi við Vegagerðina.

20230519_172154_resizedUndirbúningur í gangi. 

20230522_131840_resizedBaldur á siglingu. 

20230517_172804_resized_1Léttbátur Baldurs. 

20230520_145958_resizedHluti af áhöfn Baldurs.