Danir annast loftýmisgæslu við Ísland

Loftrýmisgæsla Atlanthafsbandalagsins við Ísland að hefjast

  • Danir-loftrymisgaesla

12.8.2022 Kl: 12:25

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast með komu flugsveitar danska flughersins. Þetta er í fimmta sinn sem Danir leggja Atlantshafsbandalaginu til flugsveit til að taka þátt í verkefninu á Íslandi, síðast árið 2018.

Flugsveitin tekur þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum í stjórnstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center) og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli, (NATO Control and Reporting Center-Keflavik).

Danska flugsveitin kemur til landsins í dag með fjórar F-16 orrustuþotur og 70 liðsmenn.

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 12. til 20. ágúst.

Framkvæmd verkefnisins verður með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.

Flugsveitin hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli en þar dvelja einnig flugsveitir aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins við kafbátaeftirlit.

Landhelgisgæsla Íslands annast framkvæmd verkefnisins í umboði utanríkisráðuneytisins og í samvinnu við Isavia.

Ráðgert er að loftrýmisgæslunni ljúki um miðjan september.

Danir-loftrymisgaesla

Dönsk F-16 orrustuþota við loftrýmiseftirlit hér á landi árið 2018.