Eyþór útskrifast frá US COAST GUARD ACADEMY

Annar Íslendinga til að útskrifast.

  • IMG_6420

20.5.2022 Kl: 10:37

Eyþór Óskarsson stýrimaður og varðstjóri hjá Landhelgisgæslunni hefur undanfarin fjögur ár stundað nám í Stjórnun (e. Management) við US Coast Guard Academy. US Coast Guard Academy er háskóli og sjóliðsforingjaskóli bandarísku strandgæslunnar sem útskrifar verðandi stjórnendur stofnunarinnar með háskólapróf á hinum ýmsu sviðum og er staðsettur í New London í Connecticut fylki.

Útskrift nýnema fór fram við skólann í gær en alls útskrifuðust 250 nýir sjóliðsforingjar að þessu sinni. Það er mesti fjöldi í sögu skólans en á meðal þeirra voru níu erlendir nemendur, þ.á.m. Eyþór en fyrir tilstuðlan Landhelgisgæslunnar fékk hann skólavist þar árið 2018.

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, og Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs, voru viðstaddir útskriftina ásamt nánustu fjölskyldu Eyþórs. Þá flutti Kamala Harris varaforseti Bandaríkjanna ávarp við útskriftina.

Fyrir 35 árum útskrifaðist Ásgrímur frá skólanum en núverandi skólastjóri, Rear Admiral William Kelly, sem stýrði útskriftinni var einmitt skólafélagi hans.

Landhelgisgæslan óskar Eyþóri innilega til hamingju með áfangann.

IMG_6415Útskrifaðir sjóliðsforingjar fagna að gömlum sið með því að fleygja húfum á loft.

IMG_6401

Varaforseti Bandaríkjanna flytur útskriftarræðuna.

IMG_6413

Björgunarþyrlur Strandgæslunnar fljúga yfir nýjum sjóliðsforingjum til heiðurs.

IMG_6420

Georg og Ásgrímur ásamt Eyþóri Óskarssyni.

IMG_6423

Georg, Ásgrímur, Eyþór og foreldrar Eyþórs, þau Helga Sveinsdóttir og Óskar Eyþórsson.

Asgrimur-asamt-Eric-Jones-og-William-Kelly

Ásgrímur L. Ásgrímsson ásamt Rear Admiral William Kelly, Superintendent US Coast Guard Academy og vinstra megin er Rear Admiral Eric Jones Deputy for Personnel Readiness US Coast Guard sem útskrifuðust saman 20. maí 1987.