Fjögur þyrluútköll í gær

11. ágúst, 2021

Áhöfnin á TF-EIR var fjórum sinnum kölluð út vegna slysa og veikinda.

11.8.2021 Kl: 11:14

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar sinnti fjórum útköllum vegna
slysa og veikinda í gær. Í fyrrinótt var áhöfnin á TF-EIR kölluð út vegna fólks sem varð strandaglópar við Blöndu eftir bílveltu. Fólkið var orðið kalt og hrakið en það var á leið
frá Akureyri til Reykjavíkur um Sprengisand og Kjalveg á buggý bílum. Þyrla
Landhelgisgæslunnar var komin að hópnum laust fyrir klukkan fimm og flutti fólkið til Reykjavíkur.

Í hádeginu í gær var þyrlusveitin kölluð út til að annast
sjúkraflug frá Vestmannaeyjum. Sjúkraflugvél gat ekki lent á Heimaey vegna
flugbrautarframkvæmda og því var TF-EIR, þyrla Landhelgisgæslunnar, send til
Eyja. Þyrlan lenti á Reykjavíkurflugvelli þar sem sjúkrabíll beið og flutti sjúklinginn á Landspítalann.

Laust eftir klukkan átta í gærkvöldi var þyrlusveitin kölluð út í þriðja sinn. Göngumaður slasaðist í Móskarðshnúkum og þurfti að
komast undir læknishendur. Björgunarsveitarmenn frá
Slysavarnafélaginu Landsbjörg huguðu að manninum þar til þyrla Gæslunnar kom á
staðinn og flutti til Reykjavíkur.

Á ellefta tímanum í gær var áhöfn þyrlunnar kölluð út í fjórða
sinn vegna konu sem slasaðist á gönguleiðinni á Langahrygg.
Björgunarsveitarmenn huguðu að konunni þar til áhöfn þyrlunnar kom á staðinn.
Hún var hífð um borð í TF-EIR og flutt á Landspítalann í Fossvogi.

Johannes-Johannesson-TF-EIR-og-SjukrabillJóhannes Jóhannesson, flugmaður, stígur úr þyrlunni eftir eitt útkallið.

Sjukrabill-og-thyrlaSjúkrabíll og TF-EIR, þyrla Landhelgisgæslunnar, á Reykjavíkurflugvelli.

Sjukrabill-og-TF-EIR-thyrlaAð loknu útkalli.