Fluttur með þyrlu eftir að hafa fallið útbyrðis

Skipverji af loðnuveiðiskipi féll útbyrðis

  • Nota2_1600696453556

20.3.2022 Kl: 22:30

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á níunda tímanum í kvöld þegar skipverji á íslensku loðnuveiðiskipi féll fyrir borð út af Sandvík á Reykjanesi. Sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðurnesjum voru sömuleiðis kallaðar út. 

Áhöfn færeysks loðnuveiðiskips, sem var í grenndinni, brást skjótt við og tókst að kasta björgunarhring til skipverjans. Skömmu síðar komu skipsfélagar mannsins honum til bjargar á léttbát. 

Áhöfn þyrlunnar sótti manninn og flutti á Landspítalann í Fossvogi. Líðan hans er eftir atvikum góð.