
Áhöfnin á Þór kvaddi Akureyri með því að ræsa slökkvibyssurnar
20. apríl 2026
Áhöfnin á varðskipinu Þór kvaddi Eyjafjörð með tilkomumiklum hætti á laugardag með því að æfa notkun á slökkvibúnaði ski...

17.8.2022 Kl: 14:50
Varðskipið Freyja er nú komið í slipp í Stavanger í Noregi þar
sem það verður málað á nýjan leik í litum Landhelgisgæslunnar. Jafnframt fer
fram minniháttar viðhald.
Verkið var boðið út af Ríkiskaupum og gengið var til samninga við norsku skipasmíðastöðina sem átti hagstæðasta tilboð í verkið.
Gert er ráð fyrir
að Freyja verði í Noregi til mánaðamóta og sigli svo flekklaus til Íslands að
því búnu.
Ljósmyndir: Guðmundur St. Valdimarsson
Freyja losnar brátt við flekkina.
Varðskipið Freyja í Stavanger.
Siglt inn í skipasmíðastöðina.
Freyja verður í Noregi til mánaðamóta.