Georg sæmdur franskri orðu
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, var sæmdur orðunni Ordre du Mérite Maritime
12.10.2022 Kl: 12:10
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, var sæmdur orðunni Ordre du Mérite Maritime af Guillaume Bazard, sendiherra Frakklands á Íslandi, í móttöku í bústað sendiherrans í gær.
Georg tók við orðunni fyrir hönd Landhelgisgæslunnar en í ávarpi sendiherrans kom fram að orðan væri meðal annars veitt fyrir að stuðla að góðum samskiptum og samstarfi franska sjóhersins og Landhelgisgæslunnar auk þess fyrir að greiða götu franskra skipa hér við land á undanförnum árum.
Í móttökunni þakkaði Georg þann heiður sem honum og Landhelgisgæslunni væri sýndur og benti á að samskipti Frakklands og Íslands tengdust sjósókn sterkum böndum sem næðu aldir aftur. Þá þakkaði hann öllum þeim sem unnið hafa ötullega að góðum samskiptum Landhelgisgæslunnar og franska sjóhersins. Einnig minntist Georg á að í tæp fjörutíu ár hefur Landhelgisgæslan notað franskar þyrlur til leitar- og björgunarstarfa hér á landi.
Guillaume Bazard, sendiherra Frakklands á Íslandi, Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, og Vincent Samson, varnarmálafulltrúi sendiráðsins.
Franski sendiherrann hengir orðuna á Georg Lárusson.
Georg þakkaði Frökkum fyrir þann heiður sem honum og Landhelgisgæslunni væri sýndur með orðunni.
Auðunn Kristinsson, Guðríður Kristjánsdóttir, Svanhildur Sverrisdóttir, Steinvör Gísladóttir og Fríða Aðalgeirsdóttir.
Georg tók á móti orðunni í bústað franska sendiherrans.
Georg Kr. Lárusson ásamt franska sendiherranum, varnarmálafulltrúanum og fjölskyldu sinni.