Grjót flutt í Grímsey

Áhöfnin á varðskipinu Þór flutti grjót í Grímsey í morgun.

  • Vardskipid-Thor-2022

6.9.2022 Kl: 11:27

Áhöfnin á varðskipinu Þór flutti í morgun 16 bretti af grjótskífum í landi á Grímsey. Alls er um 11 tonn af grjóti að ræða sem notað verður vegna byggingar á nýrri kirkju í eynni.
Þegar varðskipið var við eyjuna í morgun var svarta þoka og lítið skyggni en þrátt fyrir það gekk vel að ferja brettin í land. 
Þau voru hífð um borð í léttbát Þórs og siglt með þau í Grímseyjarhöfn þar sem byggingaraðilar tóku við þeim. Fyrr í sumar flutti áhöfn Þórs byggingarefni í eyjuna en þá flutti skipið sex tonn af timbri og grjót í Grímsey.
Okkur þykir ánægjulegt að geta aðstoðað við framkvæmdir á nyrsta kirkjubóli landsins þegar varðskipin eru við eftirlit á svæðinu.
Vardskipid-Thor-lestGrjótið um borð í varðskipinu Þór.
Saevar-Mar-grjotGrjótið flutt úr varðskipinu yfir í léttbátinn. 
Lettbatur-sjor-ThorLéttbátur varðskipsins Þór flytur grjótið í Grímsey. 
Grimsey-lettbatur-2022Grjótinu komið í land. 
Vardskipid-Thor-2022Varðskipið Þór.