Íslenskt togskip staðið að meintum ólöglegum veiðum
Íslenskt togskip var staðið að meintum ólöglegum veiðum innan lokaðs svæðis austur af Glettingi um hádegisbil í gær.
8.9.2021 Kl: 11:30
Íslenskt togskip var staðið að meintum ólöglegum veiðum innan lokaðs svæðis
austur af Glettingi um hádegisbil í gær. Varðstjórar í stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar urðu varir við að skipið væri að veiðum innan
reglugerðasvæðis 742/2021 þar sem allar veiðar með fiskbotnvörpu hafa verið
bannaðar frá 1. júlí til áramóta. Áhöfnin á TF-GNA, þyrlu Landhelgisgæslunnar,
var kölluð út og send austur til að kanna málið. Sigmaður þyrlunnar fór um
borð, skoðaði afladagbók og gerði skipstjóra togskipsins að halda til hafnar
til frekari rannsóknar. Lögregla tók skýrslu af skipstjóranum við komuna til
hafnar síðdegis í gær.
Landhelgisgæslan vill brýna fyrir skipstjórum að kynna sér vel lokuð svæði áður en haldið er til veiða. Á vef Fiskistofu má finna allar upplýsingar um slík svæði.