Jónas Karl Þorvaldsson sæmdur riddarakrossi
Jónas fær riddarakross fyrir framlag sitt til friðargæslustarfa og öryggismála.
2.1.2025 Kl: 11:18
Jónas Karl Þorvaldsson, yfirmaður séraðgerðasveitar Landhelgisgæslunnar, var í gær sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Jónas fékk riddarakross fyrir framlag sitt til friðargæslustarfa og öryggismála.
Alls hlutu fjórtán einstaklingar fálkaorðuna að þessu sinni og óskar Landhelgisgæslan þeim öllum til hamingju.
Ljósmynd: Eyþór Árnason.