Kynning á AI-ARC

Landhelgisgæsla Íslands tekur þátt í nýsköpunarverkefninu AI-ARC

  • IMG_0993_1602851539410

8.11.2022 Kl: 14:20

Landhelgisgæsla Íslands tekur þátt í nýsköpunarverkefninu AI-ARC. Um er að ræða alþjóðlegt verkefni sem fjármagnað er af nýsköpunarsjóði Evrópusambandsins, Horizon2020. Verkefnið miðar að því að auka sjálfvirkni við eftirlit, löggæslu, leit og björgun á norðurslóðum með gagnasöfnun og gervigreind. Tilgangur verkefnisins er að útbúa nýstárlegt, öflugt, skilvirkt og notendavænt kerfi sem aflar gagna um skipaumferð og sjótengda starfsemi. Því er ætlað að auðvelda greiningu á hvers kyns frávikum, auðvelda áhættugreiningu og leiða til samþættra upplýsinga um skipaumferð.


Meðfylgjandi er myndband sem gefur glögga mynd af verkefninu.

 
https://www.youtube.com/watch?v=PtD6Lz1l6v8