Landhelgisgæslan fær hjartastuðtæki að gjöf úr minningarsjóði Jennýjar Lilju Gunnarsdóttur

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, veitti þessari veglegu gjöf viðtöku í flugskýli Landhelgisgæslunnar og þakkaði fjölskyldunni þann hlýhug og virðingu sem hún sýnir Landhelgisgæslunni.

  • Jenny-Lilja-2

11.4.2023 Kl: 14:32

Fjölskylda Jennýjar Lilju Gunnarsdóttur afhenti Landhelgisgæslunni tvö hjartastuðtæki að gjöf úr minningarsjóði Jennýjar Lilju á dögunum. Jenný Lilja lést af slysförum í október 2015, aðeins þriggja ára gömul.

Fjölskylda hennar og aðrir í hlaupahópi Jennýjar Lilju hafa safnað áheitum í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka og fengið peningagjafir sem nýttar hafa verið til tækjakaupa fyrir þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og aðra viðbragðsaðila á undanförnum árum.

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, veitti þessari veglegu gjöf viðtöku í flugskýli Landhelgisgæslunnar og þakkaði fjölskyldunni þann hlýhug og virðingu sem hún sýnir Landhelgisgæslunni. ​Tækin, sem eru að andvirði 4,5 milljóna króna, gera þyrlusveitinni kleift að hafa nýrri, fullkomnari og léttari tæki meðferðis þegar mikið liggur við.

Starfsmenn Landhelgisgæslunnar eru hrærðir yfir þeirri umhyggju sem fjölskyldan hefur ítrekað sýnt í verki á undanförnum árum og senda fjölskyldunni hugheilar þakkir fyrir eljusemina og dugnaðinn.

Hægt er að styrkja minningarsjóð Jennýjar Lilju á heimasíðunni minningjennyjarlilju.is

Jenny-LiljaÍ flugskýli Landhelgisgæslunnar á dögunum. 

JL-3Hópurinn í flugskýli Landhelgisgæslunnar.