Leit hófst á ný í birtingu

Skipverja saknað síðan á laugardag

  • Image00001_1670239469549

5.12.2022 Kl: 11:11

Leit að skipverjanum sem féll útbyrðis á laugardag hélt áfram í birtingu. Leitað er á svæði sem er um 25 sjómílur frá Garðskaga og hefur leitarsvæðið verið stækkað.

 
Í gær var leitað á svæði sem var um 10x10 sjómílur en leitarsvæði dagsins er 18x18 sjómílur, um 33x33 kílómetrar að stærð. 


Áhöfnin á varðskipinu Þór var á vettvangi í nótt og hóf leit í morgun sem og björgunarskipið Oddur V. Gíslason frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.


Bæði sjólag og veður er gott á svæðinu.


Á meðfylgjandi mynd má sjá Pál Geirdal, skipherra, og Eirík Bragason, yfirstýrimann, fara yfir leitarferla dagsins.