Leituðu af sér allan grun í Skerjafirði

Björgunarsveitir og Landhelgisgæsla leituðu í firðinum eftir að tilkynnt var um neyðarblys.

9.1.2019 Kl: 10:40

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk tilkynningu frá fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra um að neyðarblys hefði sést úti fyrir Skerjafirði skömmu fyrir hádegi í gær. Tvær tilkynningar bárust lögreglu um neyðarblysið. Enginn bátur var þá í ferilvöktun í firðinum en engu að síður var ákveðið að senda björgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Óðinn, eftirlitsbát Landhelgisgæslunnar, til leitar í firðinum. Einnig var haft samband við flugumferðarstjóra í Reykjavík til að grennslast fyrir um hvort neyðarblys hefði sést frá flugturninum í Reykjavík en svo reyndist ekki vera. 

Björgunarbátur á vegum björgunarsveitarinnar Ársæls var ræstur út til leitar frá Kópavogi og skömmu síðar bættist eftirlitsbáturinn Óðinn við leitina. Á fjórða tímanum var leitinni hætt enda búið að ganga úr skugga um að engin neyð væri til staðar í firðinum.