Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland að hefjast

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst í vikunni með komu flugsveitar portúgalska flughersins hingað til lands.

  • 201019-F-QP712-0159

24.1.2022 Kl: 11:38

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst í vikunni með komu flugsveitar portúgalska flughersins hingað til lands. Þetta er í annað sinn sem Portúgalar taka þátt í verkefninu hér á landi en síðast annaðist portúgalski flugherinn loftrýmisgæslu á Íslandi fyrir áratug. Flugsveitin kemur til landsins með fjórar F-16 orrustuþotur og um 85 liðsmenn sem hafa aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Gert er ráð fyrir að portúgalska flugsveitin geri aðflugsæfingar að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 31. janúar til 7. febrúar en æfingarnar taka mið af veðri.

Portúgalski flugherinn tekur þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum í stjórnstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center) og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Framkvæmd verkefnisins er með sama hætti og áður og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.

Eins og með annan erlendan liðsafla sem hér á landi dvelur tímabundið þá er í gildi viðbúnaður vegna sóttvarna meðan á dvöl portúgölsku flugsveitarinnar stendur og er framkvæmdin unnin í samvinnu við embætti landlæknis og aðra er að sóttvörnum koma hér á landi.

Landhelgisgæsla Íslands annast framkvæmd verkefnisins í umboði utanríkisráðuneytisins og í samvinnu við Isavia.

Ráðgert er að loftrýmisgæslunni ljúki í lok mars.