Allt að 250 liðsmenn bandaríska flughersins taka þátt í verkefninu.
5.10.2020 Kl: 16:30
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst á
næstu dögum með komu flugsveitar bandaríska flughersins. Allt að 250 liðsmenn
flughersins taka þátt í verkefninu auk starfsmanna frá stjórnstöð
Atlantshafsbandalagsins í Uedem í Þýskalandi (Combined Air Operations Center)
og eistneska flughernum. Flugsveitin kemur til landsins frá Bretlandi með allt
að fjórtán F15 orrustuþotur.
Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum á varaflugvöllum á Akureyri
og Egilsstöðum á tímabilinu 9. til 16. október ef veður leyfir.
Framkvæmd verkefnisins verður með sama hætti og áður auk
þess sem hún verður í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland.
Fyrstu liðsmenn sveitarinnar komu til landsins í síðustu
viku. Strangari ráðstafanir eru gerðar vegna komu sveitarinnar en almenn gildir
um ferðamenn sem koma til landsins því auk landamæraskimana fara allir í
tveggja vikna vinnusóttkví (B-sóttkví) að fyrstu skimun lokinni.
Flugsveitin kemur til með að hafa aðsetur á öryggissvæðinu á
Keflavíkurflugvelli. Gert er ráð fyrir að verkefninu ljúki fyrir lok
mánaðarins.
Landhelgisgæsla Íslands annast framkvæmd verkefnisins í
samvinnu við Isavia.
Bandaríkjamenn koma hingað til lands með allt að 14 F15 orrustuþotur.
Bandarísku herþoturnar á Keflavíkurflugvelli.