Loftrýmisgæsla Ítala hefst í júní

Liðsmenn ítalska flughersins fara í 14 daga sóttkví fyrir komuna til landsins og aftur á Íslandi.

  • H-1

Loftrýmisgæsla ítalska flughersins hefst hér á landi um miðjan júní. Liðsmenn flughersins fara í 14 daga sóttkví, læknisskoðun og skimun á herstöð áður en hingað er komið. Þá fara þeir aftur í 14 daga sóttkví á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli eftir komuna til landsins.

Síðustu loftrýmisgæslu á vegum Atlantshafsbandalagsins lauk hér á landi í byrjun apríl með brottför norska flughersins. Gert var ráð fyrir að ítalski flugherinn kæmi í kjölfarið en vegna aðstæðna var komu Ítala seinkað.

Nú er verkefnið aftur komið á dagskrá og er ráðgert að loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefjist að nýju um miðjan júní með komu flugsveitar ítalska flughersins. Áætlað er að 135 liðsmenn flughersins taki þátt í verkefninu auk starfsmanna frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með sex F-35 orrustuþotur og eru þoturnar væntanlegar í annarri viku júnímánaðar.

Undirbúningshópur ítölsku flugsveitarinnar er kominn til landsins. Ítölsk yfirvöld gefa út vottorð fyrir alla liðsmenn áður en þeim er heimilt að fara með herflugi til Íslands. Við komuna til Íslands fara þeir aftur í 14 daga sóttkví innan öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli. Framkvæmd sóttvarnaráðstafana er unnin í samráði við Embætti landlæknis.

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 10. til 19. júní.

Framkvæmd verkefnisins verður með sama hætti og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Flugsveitin verður staðsett á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Gert er ráð fyrir að verkefninu ljúki eftir miðjan júlí. Landhelgisgæsla Íslands annast framkvæmdina í samvinnu við Isavia.