Loftrýmisgæsla NATO við Ísland að hefjast

6. apríl, 2018

NULL

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast að nýju með komu flugsveitar danska flughersins. Alls munu um 60 liðsmenn danska flughersins taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með fjórar F-16 orrustuþotur.

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 12. til 17. apríl.

Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Flugsveitin verður staðsett á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.  Ráðgert er að verkefninu ljúki um mánaðamótin apríl/maí. Verkefnið er framkvæmt af Landhelgisgæslu Íslands í samvinnu við Isavia.