Mannbjörg varð þegar strandveiðibátur sökk norðvestur af Garðskaga

Manninum tókst að komast í björgunargalla og var bjargað um borð í strandveiðibát sem var í grenndinni.

  • Image00006_1715832871822

16.5.2024 kl: 04:13

Mannbjörg varð þegar strandveiðibátur sökk norðvestur af Garðskaga á þriðja tímanum í nótt. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarkall frá skipstjóra annars strandveiðibáts klukkan 02:42 þess efnis að bátur í grenndinni væri að sökkva um 6 sjómílur norðvestur af Garðskagavita. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út á hæsta forgangi ásamt sjóbjörgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðurnesjum. Þá voru nálæg fiskiskip og bátar beðin um að halda á staðinn.

Skömmu eftir að neyðarkallið barst Landhelgisgæslunni hafði tilkynnandi aftur samband og tjáði varðstjórum í stjórnstöð að hann væri búinn að bjarga manninum úr sjónum en bátsverjanum tókst að komast í björgunargalla áður en bátur hans sökk. Maðurinn var kaldur eftir veruna í sjónum og var ákveðið að sjúkrabíll biði hans á bryggjunni á Sandgerði. Sá sem bjargaði manninum sigldi með hann þangað. Báturinn marar í hálfu kafi og munu sjóbjörgunarsveitir Landsbjargar freista þess að draga hann til hafnar.

Landhelgisgæslan vill koma á framfæri sérstökum þökkum til skipstjóra strandveiðibátsins sem sýndi mikið snarræði við björgun mannsins og einnig til annarra viðbragðaðila sem brugðust við með skjótum og fumlausum hætti.