Norðmenn annast loftrýmisgæslu

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins að hefjast

  • F-35-KEFLAVIK2

13.1.2023 Kl: 15:55

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast með komu flugsveitar norska flughersins. Þetta er í sjöunda sinn sem Norðmenn leggja Atlantshafsbandalaginu til flugsveit til að taka þátt í verkefninu á Íslandi en norski flugherinn var síðast hér á landi árið 2021. Flugsveitin tekur þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum í stjórnstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center) og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli, (NATO Control and Reporting Center-Keflavik).

Norska flugsveitin kemur til landsins á mánudaginn, með fjórar F-35 orrustuþotur og 80 liðsmenn. Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu frá 16. til 24. janúar en dagsetningarnar geta breyst vegna veðurs.

Framkvæmd verkefnisins verður með sama fyrirkomulagi og áður og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland. Flugsveitin kemur til með að hafa aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli en þar dvelja einnig flugsveitir aðildarríkja Atlantshafsbandalagins við kafbátaeftirlit. Landhelgisgæsla Íslands annast framkvæmd verkefnisins í umboði utanríkisráðuneytisins og í samvinnu við Isavia.

Ráðgert er að loftrýmisgæslunni ljúki um miðjan febrúar.