Norræna sjómælingaráðið fundaði í Álaborg

Á fundinum voru samþykktir endurskoðaðar í samræmi við samþykktir Alþjóðasjómælingastofnunarinnar.

  • NHC661

10.5.2023 Kl: 15:05

Fundur Norræna sjómælingaráðsins (Nordic Hydrographic Commission, NHC) fór fram nýverið í Álaborg. Á fundinum voru samþykktir ráðsins endurskoðaðar í samræmi við samþykktir Alþjóðasjómælingastofnunarinnar (IHO). 

Tæplega 100 ríki eru aðilar að IHO og eru aðildarríkin öll hluti af einu eða fleirum svæðisráðum. NHC, eitt af 15 svæðisráðum IHO, er elsta starfandi sjómælingaráð innan IHO, stofnað 18. mars 1929. Ísland gekk í ráðið árið 1956. 

Helstu markmið NHC hafa í gegnum tíðina verið að skiptast á skoðunum varðandi allt sem viðkemur sjómælingum og sjókortagerð og samræma norræna starfshætti. Einnig að koma fram sem ein heild er kemur að stefnumörkun og ákvarðanatöku innan IHO. 

Samstarfið hefur ávallt verið farsælt og styrkur þess skilað ómetanlegum ávinningi fyrir Ísland.

Á þingi IHO sem haldið var í Mónakó sl. viku nýttu æðstu stjórnendur norrænu sjómælingastofnananna tækifærið og undirrituðu nýjar samþykktir ráðsins.

Group-Photo-Signing-NHC66-StatutesGeorg Kr. Lárusson var meðal þeirra sem undirrituðu nýjar samþykktir ráðsins.