Öllum bátum tjaldað til og skipt um öldumælisdufl
höfnin á varðskipinu Tý skipti um öldumælisdufl austur af Surtsey á dögunum.
24.8.2020 Kl: 13:50
Áhöfnin á varðskipinu Tý skipti um öldumælisdufl austur af Surtsey á dögunum. Slík dufl eru staðsett undan Garðskaga, í Breiðafirði, Blakksnesi, Straumnesi, í mynni Steingrímsfjarðar, á Grímseyjarsundi, Kögri á Austurlandi, úti fyrir Hornafjarðarós, undan Landeyjahöfn, austur af Surtsey og úti fyrir innsiglingunni við Grindavíkurhöfn.
Ölduduflin eru afar mikilvæg sjófarendum og hafa þann tilgang að mæla ölduhæð sem mæld er frá öldudal að næsta öldutoppi.
Rafhlöður duflanna hafa takmarkaða endingu auk þess sem duflin þurfa reglubundið viðhald. Vel gekk að koma nýja duflinu fyrir og það gamla fékk vænan háþrýstiþvott.
Áhöfnin hélt einnig bátaæfingu í blíðviðrinu þar sem öllu var tjaldað til og úr varð einstaklega vel heppnuð æfing.
Þessar skemmtilegu myndir tók Guðmundur St. Valdimarsson, bátsmaður á Tý.
Gamla duflið háþrýstiþvegið.
Öldumælisduflið var austur af Surtsey.
Nýja duflinu komið fyrir.
Komið á flot.
Léttbátur varðskipsins.
Öllu tjaldað til.