Pólski flugherinn annast loftrýmisgæslu

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins að hefjast hér á landi.

  • H-1

19.8.2021 Kl: 10:48

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast með komu flugsveitar pólska flughersins, sem tekur þátt í verkefninu á Íslandi í fyrsta sinn.

Alls taka 140 liðsmenn pólska flughersins þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum í stjórnstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center) og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Flugsveitin kemur til landsins í dag, fimmtudaginn 19. ágúst, með fjórar F-16 orrustuþotur og hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Með fyrirvara um veður, er gert ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 23. ágúst til 3. september.

Framkvæmd verkefnisins verður með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland, en í ár eru 60 ár liðin frá því að loftrýmisgæsla bandalagsins hófst.

Eins og með annan erlendan liðsafla sem hér á landi dvelur tímabundið þá er í gildi viðbúnaður vegna sóttvarna meðan á dvöl pólskuflugsveitarinnar stendur og er framkvæmdin unnin í samvinnu við embætti landlæknis og aðra er að sóttvörnum koma hér á landi.

Landhelgisgæsla Íslands annast í umboði utanríkisráðuneytisins framkvæmd verkefnisins í samvinnu við Isavia. Ráðgert er að loftrýmisgæslunni ljúki í lok september.