Reykköfunaræfing á vinnsludekkinu

Á dögunum fór fram reykköfunaræfing um borð í Hringi SH 153 sem var við bryggju í Grundarfjarðarhöfn.

  • Reykkofunaraefing

28.11.2024 Kl: 9:35

Áhöfnin á varðskipinu Þór er nú við eftirlit í lögsögunni. Æfingar skipa stóran sess í störfum áhafnarinnar og á dögunum fór fram reykköfunaræfing um borð í Hringi SH 153 sem var við bryggju í Grundarfjarðarhöfn. Æfingin fór fram á vinnsludekkinu og var með þeim hætti að fjögur teymi voru send inn til reykköfunar og áttu að finna dúkku í rými sem fyllt var af reyk.

Æfing sem þessi er mikilvæg ef áhöfnin þarf að bregðast við eldi um borð í skipi og sérstaklega þýðingarmikið að rifja upp réttu handtökin reglulega. 

Reykköfunaræfing