Rússneskar herflugvélar á íslenska loftrýmiseftirlitssvæðinu

-Orrustuþotur ítalska flughersins flugu til móts við vélarnar í fyrrinótt

  • H-1

4.7.2020 Kl: 15:58

Í fyrrinótt komu óþekktar flugvélar inni í loftrýmiseftirlitssvæði Atlantshafsbandalagsins hér við land sem hvorki höfðu tilkynnt sig til flugumferðarstjórnar né voru með ratsjársvara í gangi. Í samræmi við vinnureglur Atlantshafsbandalagsins flugu orrustuþotur ítalska flughersins, sem eru hér á landi við loftrýmisgæslu, til móts við vélarnar frá Keflavíkurflugvelli.

Vélarnar voru auðkenndar suður af Stokksnesi. Þarna reyndust á ferðinni langdrægar rússneskar sprengjuflugvélar sem voru innan loftrýmiseftirlitssvæðis Atlantshafsbandalagsins en utan íslenskrar lofthelgi.

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefur staðið yfir síðan í byrjun júní. Verkefnið heyrir undir svæðisstjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center) en Landhelgisgæsla Íslands ber ábyrgð á framkvæmdinni hérlendis, í samvinnu við Isavia. Ítalska flugsveitin er með sex F-35 orrustuþotur hér á landi.