Samæfing varðskipa Landhelgisgæslunnar

Æfingin var krefjandi vegna veðurs en gekk vel

  • IMG_0979

16.10.2020 Kl: 11:15

Áhafnir varðskipanna Þórs og Týs héldu sameiginlega leitar- og björgunaræfingu í Kollafirði í vikunni. Æfingin var liður í að stilla saman strengi áhafna beggja varðskipa. 


Verkefni áhafnanna var að finna „níu skipverja“ sem saknað var á svæðinu.
Æfingin fór þannig fram að þrír léttbátar frá hvoru varðskipi voru sjósettir og leitað var að gúmmíbjörgunarbát, með fimm dúkkum, sem komið hafði verið fyrir af séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar á Kollafirði. Að auki var leitað að fjórum dúkkum sem fundust í fjörum í Þerney og Álfsnesi. 

Aðstæður til leitar voru afar krefjandi þar sem vindur gustaði yfir 30 hnúta og nokkur vindbára var einnig. Áhafnirnar leystu verkefnið með sóma við snúnar aðstæður. 

 
Meðfylgjandi myndir tóku þeir Guðmundur St. Valdimarsson og Garðar Rafn Nellett.

IMG_0794Sex léttbátar varðskipanna tóku þátt í æfingunni.IMG_1034Gúmmíbjörgunarbáturinn fundinn.IMG_0979Nokkur vindbára var á svæðinu.121661405_1651341395047129_7033974939618071123_nVerkefni áhafnanna var krefjandi.121632682_357636385584884_401501946913129077_nLéttbátur af varðskipinu Tý sjósettur.IMG_0789_1602851538323Aðstæður voru krefjandi.IMG_0967Áhafnir að störfum.IMG_0789_1602851538323Vindur gustaði yfir 30 hnúta í Kollafirði meðan á æfingunni stóð.IMG_0993_1602851539410Varðskipið Þór.