Síðasta flug Jakobs Ólafssonar

Lætur að störfum eftir 36 ár hjá Landhelgisgæslunni.

  • Jakob-3

27.11.2023 Kl: 15:23

Jakob Ólafsson, flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni, lauk farsælum ferli þegar hann lenti eftirlitsflugvélinni TF-SIF í síðasta sinn á flugvellinum í Catania nú síðdegis. Um þessar mundir er TF-SIF og áhöfn hennar við störf á Ítalíu fyrir Frontex, landamærastofnun Evrópusambandsins, og því var síðasta flug Jakobs farið þaðan. Jakob hefur verið flugmaður hjá Landhelgisgæslunni frá árinu 1987.

Jakob flaug bæði þyrlum og flugvélum Landhelgisgæslunnar en síðustu ár hefur hann verið flugstjóri á eftirlitsflugvélinni TF-SIF. Hann var flugstjóri í fjölmörgum eftirminnilegum björgunarflugum á löngum og farsælum ferli.

Jakob fór ásamt áhöfninni á TF-SIF í sitt síðasta flug frá Sikiley í dag og fékk góðar móttökur frá félögum sínum, flugvallarstarfsmönnum og fjölskyldu sinni sem lagði leið sína til Ítalíu til að fagna þessum merka áfanga með Jakobi þegar vélin lenti nú síðdegis.

Landhelgisgæslan þakkar Jakobi vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar í næsta kafla lífsins.

Jakob lendir eftir sitt síðasta flug

Jakob-og-GunnarJakob Ólafsson og Gunnar Guðmundsson takast í hendur að loknu síðasta fluginu.

JakobFjölskylda Jakobs tók á móti honum að loknu síðasta fluginu. 

Jakob-4Síðustu pappírarnir kláraðir. 

Jakob-5Jakob við TF-SIF í dag. 

Jakob-6Áhöfnin á TF-SIF og Jakob.