Sigraði í norrænni ljósmyndakeppni

Ljósmynd Guðmundar St. Valdimarssonar var valin besta mynd ljósmyndakeppni sjómanna á Norðurlöndum.

  • Gomul-visindi-og-ny

8.2.2019

Guðmundur St. Valdimarsson, bátsmaður á varðskipinu Tý, sigraði í ljósmyndakeppni sjómanna á Norðurlöndum. Þetta er í annað sinn sem Guðmundur sigrar í keppninni. Ljósmyndin sem Guðmundur kallar Gömul vísindi og ný sigraði einnig í ljósmyndakeppni sjómannablaðsins Víkings í fyrra. Úrslitin voru kunngjörð í dag en Guðmundur vann keppnina einnig fyrir sex árum, fyrstur Íslendinga. Landhelgisgæslan nýtur góðs af ljósmyndaáhuga Guðmundar sem hefur tekið myndir af starfsemi Landhelgisgæslunnar í fjölmörg ár. Vinningsmyndin var tekin þegar áhöfn varðskipsins Týs kom að stórum ísjaka en við það tækifæri rifjaði Thorben Lund, sem var skipherra í ferðinni, upp gömul fræði og staðfesti mælingar á ísjakanum með gamalli aðferð.

Gudmundur-St.-ValdimarssonGuðmundur St. Valdimarsson, bátsmaður og myndasmiður.