Sigurður Þ. Árnason látinn

Sigurður Þorkell Árnason, fyrrverandi skipherra hjá Landhelgisgæslunni, er látinn, 95 ára að aldri.

  • 3-Sigurdur-Th.-Arnason-skipherra

31.10.2023 Kl: 10:53

Sig­urður Þorkell Árna­son, fyrr­ver­andi skip­herra hjá Land­helg­is­gæsl­unni er látinn, 95 ára að aldri.
Sig­urður lauk fiski­manna­prófi frá Stýri­manna­skól­an­um í Reykja­vík árið 1951, far­manna­prófi tveimur árum síðar frá sama skóla og skip­stjóra­prófi frá varðskipa­deild Stýrimannaskólans árið 1955.
Sigurður var aðeins fjórtán ára þegar hann fór fyrst á sjó. Hann hóf fyrst störf á varðskipum Landhelgisgæslunnar árið 1947 og varð skipherra árið 1959.
Sigurður sigldi fyrst sem skipherra á varðskipinu Óðni en starfaði á öllum helstu varðskipum þjóðarinnar auk þess að vera á flugvélum og þyrlum Landhelgisgæslunnar. Sigurður var skipherra í öllum þorskastríðunum. Hann var síðasti skipherra Gæslunnar sem tók þátt í að verja út­færslu fiskveiðilögsögunnar, í fjór­ar míl­ur 1952, í 12 míl­ur 1958, í 50 míl­ur 1972 og í 200 míl­ur árið 1975.

Árið 1974 var Sigurður sæmdu ensku OBE-orðunni vegna björgunarafreks áhafnar varðskipsins Óðins sem bjargaði áhöfn enska togarans Notts County sem strandaði við Snæfjallaströnd í Ísafjarðardjúpi árið 1968. Sigurður hlaut einnig orðu frá banda­ríska sjó­hern­um, var ridd­ari hinn­ar kon­ung­legu norsku heiðursorðu og var sæmdur hinni ís­lensku fálka­orðu árið 1976 fyr­ir land­helg­is­störf. Að auki hlaut hann fjölda annarra viðurkenninga á ferlinum.
Landhelgisgæsla Íslands vottar aðstandendum Sigurðar innilegar samúðarkveðjur.
51-Sigurdur-Th-Arnason-skipherra-Odni-1968-Sigurður Þorkell Árnason, skipherra, um borð í Óðni árið 1968.
1-Heidradir-fyrir-Notts-County-Sja-lista-1968-.jpgHeiðraðir fyrir björgun áhafnar Notts County árið 1968.
57-.Odinn-III-i-Isafjardardjupi-5.-febr-1968-Notts-County-a-strandstadNotts County á strandstað í Ísafjarðardjúpi árið 1968.
Sigurdur-Th.-ArnasonSigurður hóf fyrst störf hjá Landhelgisgæslunni árið 1947.
TF-SYR-Sigurdur-Th.-Arnason-skipherra-Sigurður starfaði einnig um borð í flugvélum og þyrlum Landhelgisgæslunnar.