Sjávarfallatöflur 2025 og Sjávarfallaalmanak 2025

Landhelgisgæslan hefur gefið út ritin Sjávarfallatöflur 2025 og Sjávarfallaalmanak 2025 sem fáanleg eru hjá söluaðilum sjókorta.

  • 20241127_084934

27.11.2024 Kl: 14:48

Landhelgisgæslan hefur gefið út ritin Sjávarfallatöflur 2025 og Sjávarfallaalmanak 2025 sem fáanleg eru hjá söluaðilum sjókorta.

Sjávarfallatöflur 2025 innihalda útreikninga starfsfólks sjómælinga- og siglingaöryggisdeildar á sjávarföllum fyrir Reykjavík, Ísafjörð, Siglufjörð, Djúpavog og Þorlákshöfn ásamt breytitöflum fyrir flestar aðrar hafnir landsins. Sjá nánari skýringar á https://www.lhg.is/siglingaoryggi/sjavarfoll/

Sjávarfallaalmanak 2025 inniheldur útreikning á sjávarföllum í Reykjavík og er sjávarfallalínurit fellt yfir dagatal hvers mánaðar ásamt upplýsingum um tíma- og hæðarútreikninga fyrir aðra landshluta. Þá eru einnig birtar upplýsingar um kvartilaskipti tungls. 

Á þessu ári eru 70 ár liðin frá því að Sjómælingar Íslands, sem nú er sjómælinga- og siglingaöryggisdeild Landhelgisgæslunnar, gaf fyrst út töflur yfir sjávarföll í Reykjavík og flóðbið annarra staða við Ísland.