-Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar færðu sprengikúluna og eyddu
23.9.2020 Kl: 13:02
Séraðgerða- og sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar var
kölluð út á sjötta tímanum í gær að beiðni lögreglunnar vegna sprengikúlu úr
seinna stríði sem fannst við línuveg á Sandskeiði. Sprengikúlan lá undir þremur
háspennulínum sem liggja til höfuðborgarsvæðisins.
Vegna staðsetningar
sprengikúlunnar þótti öruggast að færa hana úr stað til að koma í veg fyrir
tjón á háspennilínunum. Þegar virk sprengikúla er færð úr stað er mikilvægt að
það sé gert af þrautþjálfuðum sprengjusérfræðingum sem hafa sérhæfðan búnað til
verksins.
Óskað var eftir sjúkrabíl frá slökkviliðinu á
höfuðborgarsvæðinu af öryggisástæðum eins og alltaf er gert ef færa þarf
sprengju sem þessa. Sprengikúlan var færð á öruggan stað og sprengd í kjölfarið.
Eyðing sprengikúlunnar gekk vel líkt og samstarf Landhelgisgæslunnar, lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
Á meðfylgjandi myndum
má sjá sprengikúluna og viðbragðsaðila á vettvangi.
Sprengikúlan er úr seinni heimsstryjöldinni.
Lögregla og sjúkraflutningamenn á vettvangi.