Staðnir að meintu ólöglegu brottkasti

Landhelgisgæslan lítur málið alvarlegum augum

  • Brottkast

26.4.2019 Kl: 16:56

Áhöfnin á TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, hefur undanfarna daga staðið skipverja þriggja fiskibáta að meintu ólöglegu brottkasti. Við reglubundið eftirlit á Íslandsmiðum náðust bæði myndir og myndbönd sem sýna hið meinta brottkast. Unnið er að rannsókn málsins en skipstjórar fiskibátanna eiga yfir höfði sér kæru vegna athæfisins. 

Landhelgisgæslan og Fiskistofa hafa tekið þessi mál til sérstakrar skoðunar að undanförnu vegna gruns um að tiltekin skip stundi ólöglegt brottkast.

Landhelgisgæslan sinnir reglulega löggæslu á hafi úr lofti með flugvélinni Sif sem hefur öflugan myndavélabúnað sem gerir áhöfninni um borð færi á að sinna eftirliti með fiskveiðum úr töluverðri hæð.

Í apríl náðust umrædd myndbönd sýna hið meinta ólöglega brottkast. Landhelgisgæslan lítur málið alvarlegum augum enda er brottkast með öllu ólíðandi þar sem um er að ræða grófa aðför að sameiginlegri auðlind okkar Íslendinga.