Straumlausum sendi á Straumnesfjalli komið aftur í gang

Áhöfnin á TF-GRO kom rafstöð á Straumnesfjalli aftur af stað.

  • TF-GRO-a-Straumnesfjalli

11.1.2022 Kl: 14:54

Á æfingu áhafnarinnar á TF-GRO í morgun var flogið vestur að Straumnesfjalli. Þar var svokallaður AIS sendir, sem sendir stjórnstöð Landhelgisgæslunnar mikilvægar upplýsingar um staðsetningu skipa í Ísafjarðardjúpi og út af Vestfjörðum, orðinn óvirkur vegna straumleysis. 

Áhöfnin á TF-GRO fékk þær upplýsingar frá tæknimönnum Neyðarlínunnar að líklegasta skýringin væri sú að rafstöð á fjallinu væri orðin olíulaus og mikilvægt að koma henni aftur í gang. Þyrlunni var lent á fjallinu rétt við endurvarpann og fór hluti áhafnarinnar að stöðinni til að kanna ástand hennar.

 Olíu var dælt af tunnum yfir á olíutank rafstöðvarinnar og skömmu síðar fengust þær upplýsingar að sendirinn væri kominn aftur í samt lag. 

Áhöfnin tók þá aftur á loft og hélt æfingunni áfram.

HrannarHrannar Sigurðsson, spilmaður og flugvirki, dælir olíu af tunnum yfir á rafstöðina.

AIS-sendirAIS sendirinn á Straumnesfjalli. 

TF-GRO-a-StraumnesfjalliTF-GRO á Straumnesfjalli í morgun. 

Teitur-styrimadurHrannar dælir.