NULL
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF aðstoðaði í dag rannsóknarnefnd samgönguslysa við að flytja þyrluna sem hlekktist á þann 22. maí síðastliðinn við Nesjavelli, frá slysstað og niður að Nesjavallavirkjun. Þaðan var þyrlan flutt til Reykjavíkur með flutningabíl.
Gekk aðgerðin mjög vel í alla staði. Meðfylgjandi myndir tók áhöfnin á þyrlu Landhelgisgæslunnar af aðgerðum dagsins.
![]() |
Þyrlan undirbúin fyrir flutning |
![]() |
Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LÍF lögð af stað með þyrluna. |
![]() |
Flutningurinn gekk mjög vel. |
![]() |
Þyrlan komin að Nesjavallavirkjun. |