TF-LIF sækir slasaðan skipverja um borð í erlent flutningaskip

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF er nú á leið að erlenda flutningaskipinu LEU sem statt er um 50 sjómílur suður af Kötlutanga en stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst beiðni frá skipinu um aðstoð vegna slasaðs skipverja. Er áætlað að þyrlan verði komin á vettvang um klukkan hálfellefu og mun hún flytja hinn slasaða á sjúkrahús í Reykjavík.