TF-LÍF sótti sjúkling til Hornafjarðar

Vegna óveðurs var ekki unnt að senda sjúkraflugvél

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst síðdegis beiðni frá lækni í Fjarðabyggð um aðstoð þyrlu vegna konu sem þurfti nauðsynlega að komast á sjúkrahús í Reykjavík. Vegna óveðurs yfir landinu var ekki unnt að senda sjúkraflugvél eftir konunni. Þyrlan TF-LIF fór í loftið frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 15.41. Sjúkrabíll flutti konuna til móts við þyrluna. 

Þyrlan flaug ekki þvert yfir landið sökum illviðrisins heldur meðfram suðurströndinni. Á leiðinni kom hún við í Vestmannaeyjum til að taka eldsneyti. Laust fyrir klukkan sex lenti TF-LIF svo á Hornafjarðarflugvelli og beið þar sjúkrabílsins. Hann kom skömmu síðar og lagði þyrlan aftur af stað til Reykjavíkur klukkan 18.52. 

TF-LIF lenti á Reykjavíkurflugvelli nú um hálfníuleytið, þaðan sem sjúkrabíll flutti konuna á Landspítalann. 

Andri-brim

Þessa mynd tók Andri Jóhannesson flugmaður á leiðnni og sýnir hún glöggt hve úfinn sjórinn var við suðurströnd landsins fyrr í dag.