TF-LIF sótti slasaðan vélsleðamann

Þyrlan hefur í tvígang verið kölluð út í dag.

  • TF-LIF_8586_1200-Baldur

8.8.2019 Kl: 13:07

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á tólfta tímanum í dag að beiðni Lögreglunnar á Suðurlandi vegna umferðarslyss við Skógafoss. Þegar þyrlan var rétt ókomin að Skógarfossi var hún afboðuð en þess í stað beðin um að halda á Eyjafjallajökul þar sem vélsleðamaður hafði slasast. Þyrlan var í næsta nágrenni við vélsleðaslysið þegar beiðni um aðstoð barst og var því snögg á vettvang. Hún lenti á jöklinum laust eftir klukkan 12 og flutti vélsleðamanninn á Landspítalann í Fossvogi.