TF-LIF tók þátt í slökkvistörfum

12. ágúst, 2019

Áhöfnin á TF-LIF notaði slökkviskjólu til slökkvistarfa við Lækjarvelli.

12.8.2019 Kl: 16:05

Síðdegis á
laugardag óskaði slökkviliðsstjórinn í Grindavík eftir aðstoð
Landhelgisgæslunnar vegna elds sem logaði í djúpum mosa austan Djúpavatns við
Lækjarvelli. Áhöfnin á TF-LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, var send til að
aðstoða við slökkvistarf og hefta útbreiðslu eldsins. Slökkvilið Grindavíkur
barðist við eldinn en erfiðlega reyndist að koma slökkvibílum að vettvangi.
Áhöfnin á þyrlunni lenti við Kleifarvatn þar sem slökkviskjólan var gerð klár
og hengd undir vélina. Að því búnu var hún fyllt af vatni og flogið með hana
sjö ferðir að eldinum. Greiðlega gekk að hefta útbreiðsluna og slökkva eldinn.
Samskipti áhafnar, slökkviliðsmanna og stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar gengu
afar vel fyrir sig og lauk aðgerðum þyrlunnar á tíunda tímanum um kvöldið.
Þyrluáhafnir Landhelgisgæslunnar hafa nokkrum sinnum í sumar æft viðbrögð við
gróðureldum þar sem slökkviskjólan er notuð. Áhöfnin á TF-LIF tók mynd úr lofti
af svæðinu eftir að slökkvistarfi lauk en græna slikjan sýnir svæðið þar sem
vatn fór á óbrunninn mosann og hefti útbreiðslu eldsins.

AEfing-fyrr-i-sumarTF-LIF á æfingu fyrr í sumar með slökkviskjóluna.AEfing-fyrr-i-sumar2