TF-SYN sótti tvo göngumenn

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst á fimmta tímanum í dag neyðarkall frá tveimur erlendum göngumönnum á Tungnaárjökli.

  • TF-SYN_1550946392278

23.02.2019 Kl: 18:26

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst á fimmta tímanum í dag neyðarkall frá tveimur erlendum göngumönnum á Tungnaárjökli. TF-SYN, þyrla Landhelgisgæslunnar, og björgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru þegar í stað kallaðar út. Mennirnir höfðu meðferðis neyðarsendi sem þeir virkjuðu en þeir voru orðnir kaldir og hraktir. Þyrla Landhelgisgæslunnar tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli laust fyrir klukkan 17 og rúmri klukkustund síðar voru mennirnir komnir um borð í þyrluna. TF-SYN er nú á leið með göngumennina til Reykjavíkur.