Þór hafði afskipti af farþegabáti

Báturinn var með útrunnið haffærisskírteini og með of marga farþega um borð

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst á ellefta tímanum í gærkvöld ábending um að farþegabátur væri á sjó nærri Reykjavík með útrunnið haffærisskírteini og of marga farþega um borð miðað við áður útgefið farþegaleyfi. Varðskipið Þór var í grenndinni og óskaði stjórnstöðin eftir því að það kannaði málið. Um leið var lögreglu gert viðvart og hún beðin um að taka á móti bátnum þegar hann kæmi til hafnar. 

Um ellefuleytið sást báturinn í ratsjá varðskipsins en þá var hann rétt norðvestur af Engey á leið til hafnar. Báturinn var ekki með kveikt á AIS-staðsetningarbúnaði og hafði ekki tilkynnt sig úr höfn. Léttbátur varðskipsins var sendur í átt að farþegabátnum, fóru tveir stýrimenn varðskipsins um borð og fylgdu bátnum til hafnar þar sem lögregla tók á móti honum. Um borð voru 45 farþegar en samkvæmt þágildandi farþegaleyfi bátsins var aðeins heimild til að hafa tólf farþega. Fjórir voru í áhöfn en aðeins einn var lögskráður, sá var háseti. Hinir voru einungis með hluta af nauðsynlegum réttindum. Skipstjórans bíður kæra vegna málsins. 

Landhelgisgæslan lítur þetta mál alvarlegum augum. Báturinn var án haffæris, lögskráningu áhafnar ábótavant, báturinn með óvirkan AIS-búnað og tilkynnti sig ekki úr höfn. Síðast en ekki síst voru næstum því fjórum sinnum fleiri farþegar um borð en farþegaleyfið heimilaði. Ekki þarf að hafa mörg orð um hve alvarlegt ástand hefði getað skapast ef báturinn hefði lent í hafsnauð en bjargir hefðu að líkindum verið mun lengur berast sökum þess að hann var hvorki í ferilvöktun né hafði hann tilkynnt sig úr höfn. 

Mynd með frétt: Árni Sæberg