Þór sótti skipið inn á Fönfjörð
23.9.2023
Varðskipið Þór er nú með franska farþegaskipið Polarfront í togi frá Grænlandi til Reykjavíkur. Í vikunni var leitað til Landhelgisgæslunnar vegna farþegaskipsins sem var búið að vera vélbilað innst í Fönfirði, sem er inn af Scorespysundi á Grænlandi, í nokkra daga. Veður á svæðinu var með besta móti og skipið var við akkeri suður af eyjunni Röd. Vel gekk að koma taug á milli skipanna eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi. Þegar áhöfnin á Þór lauk störfum á Seyðisfirði á miðvikudag hélt varðskipið til Grænlands. Um tveggja sólarhringa sigling var inn í Fönfjörð. Gert er ráð fyrir að Þór komi með Polarfront til Reykjavíkur á mánudag.
Polarfront og varðskipið Þór
Línu skotið á milli skipanna.
Frá Fönfirði.