Maðurinn var hífður um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar og báti hans siglt til hafnar.
4.5.2023 Kl: 11:29
Laust eftir miðnætti fékk stjórnstöð Landhelgisgæslunnar tilkynningu um veikindi um borð í fiskibát sem var á strandveiðum vestur af Sandgerði. Einn var um borð í bátnum. Þyrla Landhelgisgæslunnar, björgunarskipið Stefnir frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg og varðskipið Þór voru kölluð út og beðin um að halda á staðinn. Þá var fiskibátur í grenndinni sömuleiðis beðinn um að halda á vettvang. Skipverjinn var hífður um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar og komið undir læknishendur í Reykjavík. Sigmaður þyrlunnar varð eftir í bátnum og sigldi honum til Sandgerðis í fylgd Stefnis. Á sjöunda tímanum í morgun var fiskibáturinn kominn til Sandgerðis.