Þyrlusveit í þrjú útköll á undanförnum sólarhring

Tvö útköll út á sjó

  • _S4I8076-Copy

7.6.2023 Kl: 11:12

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur á undanförnum sólarhring annast þrjú útköll, þar af tvö út á sjó.

Á þriðja tímanum í nótt hafði skipstjóri togara samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar vegna bráðra veikinda um borð. Togarinn var þá staddur um 14 sjómílur út af Búðarhorni á Vestfjörðum og var áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar kölluð út. Hífingar gengu vel og skipverjinn var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík.

Í gær var þyrlan tvívegis kölluð út. Í fyrra skiptið vegna göngukonu sem hrasaði og slasaðist á fæti á Breiðamerkurjökli. Konan var sótt og flutt á Landspítalann. Síðdegis í gær óskaði skipstjóri togara eftir aðstoð þyrlusveitar vegna slyss sem varð um borð en skipið var þá statt á miðjum Faxaflóa. Áhöfnin á TF-GNA, þyrlu Landhelgisgæslunnar, var kölluð út á mesta forgangi. Skipverjinn var hífður um borð í þyrluna og fluttur á sjúkrahús í Reykjavík.