
Yfirmenn strandgæslna á Norður-Atlantshafi funda í Reykjavík
21. október 2026
Fundur yfirmanna strandgæslna á Norður-Atlantshafi, North Atlantic Coast Guard Forum (NACGF), hófst í Reykjavík í gær. Á...

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna veikinda um borð í íslensku skipi sem statt var um 60 sjómílur norður af Hornströndum í gærmorgun.
Áhöfnin á TF-GRO tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli á níunda tímanum en þegar farið er í útköll sem þessi er önnur þyrluáhöfn sett í viðbragðsstöðu í Reykjavík, til að gæta fyllsta öryggis. Laust fyrir klukkan tíu var þyrla Landhelgisgæslunnar komin að hlið skipsins.
Áhöfn þyrlunnar byrjaði á að slaka tengilínu niður til áhafnar skipsins og sigmaður seig því næst um borð svo unnt væri að undirbúa sjúklinginn undir að vera hífður um borð í þyrluna. Hífingin gekk vel og skipverjinn var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík.

Flugleið þyrlunnar.